Okkar heimur
Hvað er geðhvörf?
Manneskja með geðhvörf er líkleg til að sveiflast á milli öfgafullra skapsmuna, frá því að vera mjög niðurdregin og líða afar illa til tíma þegar henni finnst hún full af orku, er ofurspennt og ófær um að róa sig niður.

Lagt er til að staðsetja dans- og fimleikahús, þar sem allar tegundir af dansi fái að njóta sín,
í nánum tengslum við hverfiskjarnann við Gerðuberg

Styrkir hverfiskjarnann við Austurberg
Horft er til þess að staðsetja dans- og fimleikahúsið við Gerðuberg 1 (bleiklitaða húsið til hægri á miðri myndinni).
Teikning: Jakob Jakobsson arkitekt.
Mynd: Bragi Þór Jósefsson.
Allar tegundir af dansi fái að njóta sín
Upphaflega var horft til þess að finna stað fyrir fimleikahús í Efra Breiðholti, í samræmi við samning borgarinnar og ÍR frá árinu 2017.
Strax þá voru áformin tengd við dansinn og skyldi við þarfagreiningu verkefnisins horfa til starfsemi og þarfa dansskóla. Árið 2020 var svo samþykkt í borgarráði að fela umhverfis- og skipulagssviði að koma með tillögu að staðsetningu fimleika- og danshúss í Efra Breiðholti, sem er nú orðið að tillögu í hverfisskipulaginu, í nánum tengslum við hverfiskjarnann við Gerðuberg. Miðað er við að dans- og fimleikahúsið verði 2-3 hæðir og 2-3.000 m² með fjölnotasal, fimleika- og karatesal, minni danssal, búningsaðstöðu, geymslurými og anddyri.
Horft er til þess að allar tegundir af dansi fái að njóta sín í dans- og fimleikahúsinu, sem á að þjóna bæði íbúum í Breiðholti og borginni allri. Með áherslu á fjölbreytta dansiðkun getur slíkt hús styrkt enn frekar hið fjölþjóðlega samfélag í borginni og opnað allskyns ný samskipti og samskiptamöguleika.
