Netkönnun fyrir íbúa í hverfunum við Laugardal

Kæru íbúar í Laugardal hér er netkönnun þar sem hægt er að koma fram ábendingum um hvernig skal gera að gera borgarhlutann ykkar enn betri. Könnunin er hluti af hluti af hugmynda- og upplýsingaöflun vegna vinnu við hverfisskipulag í ykkar borgarhluta sem nær til hverfanna Laugarnes, Langholt og Voga. Innan þessara hverfa eru hverfiseiningar eins og Tún, Teigar, Lækir, Laugarás, Sund, Langholt, Heimar og Voga ásamt nýjum hverfishlutum við Kirkjusand og í nýju Vogabyggðinni. Útivistar- og Íþróttasvæðið í Laugardalnum tengist þessari vinnu órjúfanlegum böndum sem mikilvægt almenningsrými fyrir íbúa í þessum hverfum sem og allra borgarbúa.

Hugmyndasöfnun vegna hverfisskipulags byrjað í mars með opnu húsi sem stóð dagana 28. mars til 3. apríl undir stúkunni á Laugardalsvellinum. Þá komu í heimsókn um 1.300 nemendur úr öllum fjórum skólunum í borgarhlutanum og um 250 fullorðnir íbúar. Gestir á opna húsinu lögðu fram um 4.800 ábendingar og hugmyndir. Samtímis fór fram netkönnun um ferðaleiðir og nýtingu á almenningsrýmum í Laugardalnum sem um 400 manns tók þátt í.

Mikið af þeim hugmyndum sem hafa safnast snúa að því hvernig bæta megi þjónustu í hverfunum og gera þau öruggara sérstaklega fyrir börn. Fjöldi hugmynda fjalla um málefni íþrótta- og útvistarsvæðisins í Laugardal og hvernig mengi bæta íþrótta- og leikaðstöðu fyrir börn og ungmenni.

Byggt á öllum þessum hugmyndum, sérstaklega frá börnunum, verður hægt að þróa mjög góðar skipulagstillögur um hvernig gera má hverfin í Laugardal afbragðs góð fyrir börn. Og góð hverfi fyrir börn er góð fyrir alla.

Í vinnu við hverfisskipulag þarf líka að taka mið af þörfum og sjónarmiðum hinna fullorðnu. Þess vegna leitum við nú til ykkar kæru íbúar eftir hugmyndum um hvernig bæta megi hverfið. Það getið þið gert með því að taka þátt í netkönnun okkar hér: Borgarhluti 4 – Laugardalur.

Netkönnunin verður opin i tvær viku. Niðurstöður úr henni ásamt hugmyndum frá börnum verð notaðar til þess að þróa vinnutillögur hverfisskipulags fyrir Laugardalinn sem verða kynntar fyrir íbúum og hagsmunaaðilum í haust. Þetta verður gert með sérstakri sýningu og kynningarsíðu þar sem leitað verður álits íbúa enn á ný en samráð og þátttaka íbúa er afar mikilvægur hluti af vinnu við hverfisskipulag.