Umhverfisvottun

Til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum nýrra uppbyggingarsvæða er í dag lögð áhersla á að gera borgarumhverfi og byggingar sem mest vistvæn og sjálfbær. Slíkt er enn mikilvægara í nýjum borgarhluta eins og Ártúnshöfða og Elliðavogi sem eru rétt við helstu útivistarsvæði borgarinnar og í mikilli nálægð við viðkvæma náttúru. Því er stefnt að því að deiliskipulagsáætlanirnar fyrir Ártúnshöfða og Elliðavog fái BREEAM umhverfisvottun.

Ártúnshöfði og Elliðaárvogur

Markmiðið með staðlinum er að hjálpa hönnunarteymi, framkvæmdaaðilum og skipulagsaðilum að bæta, mæla og sjálfstætt votta sjálfbærni hverfis á hönnunar- og skipulagsstigi.

Innan þessa fimm efnisflokka eru kröfur til ýmissa ólíkra þátta sem lagt er mat á við skipulagsvinnuna. Horft er til atriða eins og samráðs, grænna og opinna svæða, samgangna, vistfræði, orkunotkunar, mengunar, heilsu og vellíðunar, landnotkunar og meðhöndlunar úrgangs og ofanvatns, til að nefna helstu þætti.

Hvaða þýðingu hefur vistvottun fyrir okkur?
Ólöf Kristjánsdóttir
samgönguverkfræðingur M.Sc. Fagstjóri samgangna Mannviti (BREEAM Communities matsaðili)
Umhverfisvottun BREEAM
Umhverfisvottun á skipulag er unnið í skrefum.

BREEAM Communites mat á skipulagi styður við BREEAM mat á byggingum innan hverfisins ef ákveðið er að umhverfisvotta einstaka byggingar.

Hægt er að fræðast meira um BREEAM hér.

Efnisflokkar BREEAM
Þegar umhverfisvottun er unnin eru þessir fimm efnisflokkar skoðir og skipulaginu gefin einkunn.

Sendu okkur línu ef þú vilt koma einhverju á framfæri

Hvort sem þú ert með ábendingu, spurningu eða hrós tökum við vel á móti þér ! *
Okkur Form