Kynningarmyndbönd og könnun
Fimmtudaginn 25. febrúar síðastliðinn fór fram forkynningar-fundur um deiliskipulagsvinnuna sem er í gangi uppi á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog. Hér að neðan eru myndbönd af erindum fundarins aðgengileg auk þeirra kynninga sem kynntar voru en horfa má á fundinn í heild sinni hér.
Samhliða fundinum opnaði kortakönnun um skipulag svæðisins þar sem notast er við netsamráðskerfið Maptionnaire. Hægt er að taka þátt í könnuninn hér til hliðar.
Áfram er hægt að senda inn spurningar eða athugasemdir á netfangið hofdinn@reykjavik.is eða í gegnum skilaboðaboxin neðst á síðunni.
Ávarp varaformanns skipulags- og samgönguráðs
Pawel Bartoszek varaformaður skipulags- og samgönguráðs fer yfir tækifærin sem felast í því að umbreyta umhverfi Elliðaárvogs og Ártúnshöfða úr iðnaðarsvæði í blandaða byggð í hjarta borgarinnar í miklum tengslum við Grafarvoginn og Elliðaárnar.
Höfðinn – nýr borgarhluti í mótun
Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís fer yfir þær grunnhugmyndir sem liggja að baki skipulagstillögunum og hvernig þær tengjast stefnumörkin borgarinnar um þéttingu byggðar og tengingu svæðisins við Borgarlínuna.
Arkís eru meðhöfundar að rammaskipulagi svæðisins sem samþykkt var árið 2016 í kjölfar hugmyndasamkeppni sem fram fór árið 2015. Arkís eru einnig deiliskipulagshöfundar á stækkun Bryggjuhverfsins.
Krossamýrartorg – nýr kjarni í austurhluta borgarinnar
Páll Gunnlaugsson arkitekt hjá ASK arkitektum fer yfir fyrirliggjandi skipulagstillögur uppi á Ártúnshöfða við Stórhöfða og Breiðhöfða.
Kjarni svæðisins verður við Krossamýrartorg þar sem gert er ráð fyrir nýju menningarhúsi í tengslum við torg og almenningsgarð í tengslum við eina helstu skiptistöð Borgarlínunnar í austurhluta borgarinnar.
Elliðaárvogur – borgin við sundin
Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir skipulagsfræðingur hjá Arkís fer yfir fyrirliggjandi skipulagstillögur niðri við Elliðaárvog við Sævarhöfða.
Niðri við Elliðaárvoginn verður áherslan á íbúðabyggð en einnig er gert ráð fyrir þjónustustarfsemi á völdum stöðvum sem þjóna mun hverfinu. Þar er einnig gert ráð fyrir tveimur skólabyggingum auk sundlaugar úti Grafarvoginn.
Grænasti borgarhlutinn
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslag fer yfir tillögur að þeim grænu svæðum og almenningsrýmum sem skipulagið gerir ráð fyrir. Mikil áhersla hefur verið lögð á að skapa góð og græn almenningsrými í deiliskipulags-vinnunni sem meðal annars má kynna sér í hönnunarhandbók svæðisins.
Landslag eru meðhöfundar að rammaskipulagi svæðisins sem samþykkt var árið 2016 í kjölfar hugmyndasamkeppni sem fram fór árið 2015.
Látum draumana rætast – samspil skóla og umhverfis
Soffía Vagnsdóttir hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur fer yfir áherslur í skólamálum í hinu nýja íbúðarhverfi við Elliðaárvog og Ártúnshöfða.
Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir tveimur stærri skólabyggingum á skilgreindum skólalóðum þar sem flétta á saman leik- og grunnskóla. Þar að auki er gert ráð fyrir að minni leikskólar fyrir yngri börn geti verið staðsettir víðar innan hverfisins.
Samgöngur – blöndun ólíkra ferðamáta
Anna Guðrún Stefánsdóttir skipulags- og samgönguverkfræðingur hjá Verkís fer yfir áherslur á blöndun ólíkra innan skipulagsins. Borgarlínan mun liggja sem hryggjarstykki í gegnum hverfið en einnig hafa góðar aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verið í brennidepli.
Verkís eru meðhöfundar að rammaskipulagi svæðisins sem samþykkt var árið 2016 í kjölfar hugmyndasamkeppni sem fram fór árið 2015.