Áætlanir – yfirlit

Haldin var samkeppni um rammaskipulag Elliðaárvogs og Ártúnshöfða árið 2015 þar sem megin verkefnið var að umbreyta svæðinu úr iðnaðarhverfi í blandaða byggð.

Á grunni vinningstillögu úr samkeppninni var unnið rammaskipulag fyrir svæðið sem var lagt fram og samþykkt í ráðum borgarinnar í ársbyrjun 2016.

Í kjölfar samþykktar á rammaskipulaginu var samþykkt deiliskipulag fyrir stækkun á Bryggjuhverfinu en nú stendur yfir skipulagsvinna fyrir hluta svæðisins uppi á Ártúns-höfðanum og niðri við Elliðaárvoginn.

Ártúnshöfði og Elliðaárvogur

Sævarhöfði
Þétt borgarbyggð við Sævarhöfði á svæði 2.
Áætlað er að fullbyggt hverfi geti rúmað allt að 8 þúsund íbúðir, þ.e. um 20 þúsund íbúa, auk ýmis konar þjónustu og atvinnustarfsemi. Borgarlína mun ganga í gegnum miðju svæðisins enda eitt af megin markmiðum skipulagsins að stytta vegalendir innan borgarinnar og styðja við umhverfisvæna þróun Reykjavíkur.

Skipulagstillögurnar gera ráð fyrir blandaðri byggð og fjölbreyttu íbúðaformi í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um að 20% íbúða skuli vera leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir og/​eða íbúðir fyrir aldraða. Einnig er gert ráð fyrir að Félagsbústaðir geti átt allt að 5% íbúða á svæðinu.

Elliðavogur – svæði 2
Borgarlínuás á brú yfir Elliðavogur og Elliðaá. Í fjarska blasir við byggðin á svæði 2.

 Gert er ráð fyrir að tveir  nýir grunnskólar og einn safnskóli rísi á þeim skipulagssvæðum sem hér eru til umfjöllunar. Einnig er gert ráð fyrir að menningarhús rísi við Krossamýrartorg, sem mun verða þungamiðja borgarhlutans með biðstöð borgarlínu og fjölbreyttri verslun, þjónustu og afþreyingu.  Gert er ráð fyrir að sundlaug verði nyrst á svæðinu sem vísi út á Elliðaárvoginn sem verði hluti af síðari deiliskipulagsáföngum

Framkvæmdir við uppbygginguna á svæðinu eru áætlaðar í fimm ára fjárhags- og fjárfestingaráætlun borgarinnar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist árið 2021.

Áfangaskipting- deiliskipulagsáætlana

Deiliskipulagsvinnu fyrir borgarhlutann er skipt upp í nokkra áfanga og eru svæði 1 og 2 nú í auglýsingu. Deiliskipulag fyrir svæði 4 hefur þegar verið samþykkt. 

Svæði 1. – Krossamýrartorg – í auglýsingu 
Svæði 2. – Sævarhöfði – í auglýsingu

Svæði 4. – Stækkun Bryggjuhverfis – samþykkt deiliskipulag 

Næstu áfangar:
Svæði 3. – Sævarhöfði, norður
Svæði 5. – Krossamýrartorg, norður
Svæði 6. – Malarhöfði, Þórðarhöfði
Svæði 7. – Þórðarhöfði, Breiðhöfði

Áfangaskipting- deiliskipulagsáætlana
Skipulagsuppdráttur af öllu svæðin sem sýnir áfangaskipting- deiliskipulagsáætlana.

Sendu okkur línu ef þú vilt koma einhverju á framfæri

Hvort sem þú ert með ábendingu, spurningu eða hrós tökum við vel á móti þér ! *
Okkur Form